|
Pólitískt uppgjör Sjálfstæðisflokksins
Ég er nýr í stjórnmálum og bloggheimum. Mín opinbera aðkoma að stjórnmálum hófst á fundi Sjálfstæðismanna á Grand Hótel 30. janúar, sem boðað hafði verið til í eftir stjórnarslit. Forystusveit flokksins sat þar við háborð og svaraði spurningum í kjölfar framsögu Geirs H. Haarde. Mér fannst of mikill hluti fundarins snúast um Samfylkinguna, VG og Framsókn. Svo komu spurningar úr sal. Þær báru flestar, að mér fannst, merki foringjalotningar og voru í litlum takti við það ástand sem við lifum og hrærumst í. Þessi skilaboð öll, auk þess að bíða ætti eftir niðurstöðu rannsóknarnefndar um bankahrunið með aðgerðir og tal um ábyrgð voru mér vonbrigði.
Ég var ósáttur við hversu úr takti forysta Sjálfstæðisflokksins hefur verið við grasrótina og ákvað að láta til mín taka. Í kjölfarið hóf ég störf fyrir Endurreisnarnefnd Sjálfstæðisflokksins til að beita mér fyrir heiðarlegu uppgjöri við störf flokksins undanfarin ár. Í kjölfar bréfs sem ég sendi Vilhjálmi Egilssyni var ég fenginn til að stýra vinnuhópi um „Uppgjör og lærdóm". Ég hef þá skoðun, og viðraði í umræddu bréfi til Vilhjálms, að Sjálfstæðisflokkurinn eigi að sýna gott fordæmi og ganga í gegnum sjálfsskoðun þar sem mistök hans eru tilgreind til þess að geta lært af þeim. Með þeim hætti gerist tvennt. Flokkurinn viðurkennir hið augljósa að margar ákvarðanir (eða ákvörðunarfælni) voru mistök og gerir þannig upp fortíðina pólitískt. Næsta skref er augljóslega að einbeita sér að uppbyggingarstarfi landsins og flokksins. Það er forsenda þess að við getum byggt upp frá grunni með réttlæti að leiðarljósi. Grunnstefna Sjálfstæðisflokksins um virðingu fyrir einstaklingnum og réttindum hans brást ekki, heldur fólkið sem átti að fylgja henni. Auk þessa þá tel ég að Sjálfstæðismönnum líði mun betur að fylgja slíkri stefnu en þeirri afneitun sem viðgekkst eða virtist vera hin opinbera lína.
Fyrstu drög starfshóps innan Endurreisnarnefndarinnar um „uppgjör og lærdóm", rötuðu í fjölmiðla og vöktu viðbrögð. Margir hafa haft samband við mig gagngert til að lýsa ánægju sinni með störf okkar hóps, fjöldi fólks tók þátt í starfi nefndarinnar. Geir H. Haarde sagðist reyndar ekkert kannast við mig, benti á meinlega staðreyndarvillu (réttilega) í skýrslunni aukinheldur sem Endurreisnarnefndin hefði ekki það hlutverk að skoða fortíðina. Við Geir höfum nú heilsast þó við þekkjumst ekki mikið meira en þegar þessi orð hans féllu. Búið er að leiðrétta villuna og okkar hlutverk var að gera upp fortíðina og draga lærdóm af. Hér má finna lokaskýrslu míns hóps.
Ég fagna því að umræða innan Sjálfstæðisflokksins rúmi fleiri skoðanir en flokksforystunnar og er stoltur af að hafa haft forgöngu um þá aðferðafræði sem varð ofan á í þeim hóp sem ég stýrði. Mér sýnist ég eiga skoðanabræður og systur um landið í baráttu minni fyrir því að Sjálfstæðisflokkinn leiði endurreisn Íslands með því að endurnýja fyrst sjálfan sig og fylgja stefnunni fastar í framtíðinni.
Barn þurfti til að benda á hið augljósa í ævintýrinu, keisarinn var nakinn. Í Sjálfstæðisflokknum þurfti sigldan sveitamann sem ekki er alinn upp við blindan flokksaga og foringjalýðræði til að benda á það sem allflestir vita og skilja. Sjálfstæðisflokkurinn gerði mistök og af þeim þarf að læra í endurreisnarstarfinu. Ég vil færa Sjálfstæðisflokkinn nær grasrótinni því þar slær hjarta flokksins. Í Sjálfstæðisflokknum er gott fólk sem á það skilið að stefnu hans sé fylgt fastar eftir.
Ég er svo í prófkjöri sjálfstæðismanna í Norðvesturkjördæmi og vonast auðvitað til að hljóta brautargengi til að vinna landinu og kjördæminu gagn. Þetta bloggsvæði mun markast af prófkjörinu næstu vikuna eða svo.
Sigurður Örn Ágústsson
P.s. Frelsi fylgir ábyrgð. Hverjum og einum er frjálst að tjá sig við mín skrif með athugasemdum. En því frelsi fylgir sú ábyrgð að viðkomandi verður að skrifa undir fullu nafni og athugasemdirnar verða að vera innan velsæmismarka.
|