Sigurður Örn Ágústsson sækist eftir 2.-4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi.
Ég býð mig hér með fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi og bið um stuðning í 2.-4. sæti á lista flokksins.
Staða Íslands er erfið. Mikið verk verður að koma hlutunum í gott lag, en það er hægt, verði stefnu Sjálfstæðisflokksins fylgt. Þess vegna er mikilvægt að fólkið sem tekst á við þau störf þurfi ekki að verja gamlar ákvarðanir eða aðgerðaleysi. Við þurfum got fólk með sjálfstæðar skoðanir, gagnrýna hugsun, haldgóða þekkingu, reynslu og menntun að ógleymdum eldmóði til að takast á við hið mikla verk að endurreisa íslenskt efnahagslíf.
Við Íslendingar höfum það sem til þarf til að komast aftur í allra fremstu röð meðal þjóða. Við verðum þó fyrst að horfast í augu við fortíðina til að geta tekist á við framtíðina og farið að huga að endurreisn Íslands. Hér þarf að breyta, það er augljóst.
Ég er trúr stefnu Sjálfstæðisflokksins en tel að við í Sjálfstæðisflokknum höfum sofnað á verðinum. Frelsi einstaklingsins á enn að vera eitt af grunngildum samfélagsins en því fylgja skyldur og ábyrgð sem hvorutveggja hefur verið vanrækt á síðustu árum. Því legg ég áherslu á frelsi með ábyrgð.
Ég hef haldgóða stjórnunarreynslu úr atvinnulífinu, erlendis og hérlendis, og góða menntun. Hvort tveggja tel ég skipta miklu máli við úrlausn þeirra miklu verkefna sem liggja fyrir.
Ég er frá Geitaskarði í Langadal í Austur-Húnavatnssýslu, á fimm systkini og er ókvæntur og barnlaus.
Vertu velkomin(n) á heimasíðuna mina, hér getur þú fræðst betur um fyrir hvað ég stend.
Með kveðju,
Sigurður Örn Ágústsson.
|